Blika.is er í eigu Veðurvaktarinnar ehf, vedurvaktin@vedurvaktin.isUm Bliku
Tjaldsvæðið á Akranesi
1 / 4

Upplýsingar

7902266
visitakr
camping.akranes23@gmail.com
64.325969, -22.067491
1.5. - 31.5.

Verð

Fullorðnir2.000 kr
15 - 17 ára2.000 kr
1 - 14 ára0 kr
Rafmagn1.300 kr
Ellilíferisþegi1.500 kr
Þvottur400 kr
Gistináttagjald400 kr
Síðast uppfært: 2025

Þægindi

Kalt vatn
Heitt vatn
Rafmagn
Eldunaraðstaða
Sturta (frítt)
Símasamband
campsiteDetail.wifi
Hundar leyfðir
Þvottavél
Vatnssalerni

Um tjaldsvæðið

Tjaldsvæðið á Akranesi við Kalmansvík verður vinsælla með hverju árinu sem líður og fjöldi fólks nýtir sér það hvert sumar. Þar er vel búið að ferðafólki hvort sem það ferðast með húsvagna hvers konar, eða með tjöld, lítil og stór.

Seyrulosun fyrir húsbíla er til staðar, rafmagnstengingar eru margar og í þjónustuhúsi eru sturtur og snyrtingar auk þess sem hægt er að nýta þvottavél og þurrkara.

Tjaldsvæðið er vel í sveit sett á norðanverðu Akranesi ofan við sandfjöruna í Kalmansvík og þaðan er fallegt útsýni yfir á Snæfellsnesfjallgarðinn þar sem jökullinn skartar sínu fegursta á góðviðrisdögum. Frá tjaldsvæðinu er skemmtileg gönguleið með ströndinni að Elínarhöfða og Höfðavík, gegnum Miðvog inn að Innstavogi og alveg út á Innstavogsnes. Stutt er í verslanir og þjónustufyrirtæki frá tjaldsvæðinu og upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk er við Akratorg í um 15 mínútna göngufæri frá tjaldsvæðinu.