Blika.is er í eigu Veðurvaktarinnar ehf, vedurvaktin@vedurvaktin.isUm Bliku
Bakkaflöt
1 / 6

Upplýsingar

4538245
http://www.bakkaflot.is
bakkaflot@bakkaflot.is
65.463686, -19.345368
1.1. - 31.12.

Verð

Fullorðnir2.000 kr
13 - 17 ára2.000 kr
1 - 12 ára0 kr
Rafmagn1.000 kr
Gistináttagjald400 kr
Síðast uppfært: 2025

Þægindi

Kalt vatn
Heitt vatn
Rafmagn
Engin eldunaraðstaða
Sturta (greitt)
Upplýsingar vantar
Ekkert WiFi
Hundar leyfðir
Engin þvottavél
Vatnssalerni

Um tjaldsvæðið

Klara Sólveig Jónsdóttir og Sigurður Friðriksson stofnuðu Ferðaþjónustuna Bakkaflöt árið 1987 og hefur staðurinn verið byggður upp frá því smátt og smátt. Byrjað var með nokkur herbergi, veitingarsal og tjaldstæði. Upp úr 1990 var svo bætt við tveimur sumarhúsum og fleiri herbergi innréttuð í aðalbyggingunni. Árið 1993 var farið að kanna jökulsárnar sem nýjan afþreyingarmöguleika, það var þó ekki boðið upp á river rafting niður Austari og Vestari Jökulsárnar fyrr en 1996.

Við bjóðum nú river rafting í Austari og Vestari Jökulsá daglega til og með 18. september:

Austari Jökulsá kl. 09:00 og 15:00

Vestari Jökulsá kl. 09:30 og 13:00

Einnig "sit on top" Kayakferðir á Svartá kl. 20:00.

í dag eru fljótasiglingarnar orðin stór partur af okkar starfsemi og má líta á Bakkaflöt sem eins konar miðstöð fljótasiglinga á norðurlandi. Einnig erum við komin með hátt í 30 gistiherbergi, tvö sumarhús, tjaldstæði, heita potta og litla sundlaug, veitingarsal sem rúmar hátt í 100manns, veitingarsölu og bar.